Ökukennsla á höfuðborgarsvæðinu

Ökunám á þínum hraða.

Tökum fyrstu skrefin saman. Veldu sjálfskiptingu eða beinskiptingu og finndu þína leið frá fyrsta ökutíma að bílprófi.

Kennslubílarnir tveir: Hyundai og Kia Niro með ökukennsluskilti á þaki
Kennslubílarnir mínir · Hyundai Tucson og Kia Niro

Hvernig bíl vilt þú læra á?

Þú getur lært á sjálfskiptan eða beinskiptan bíl. Veldu hér og hafðu samband ef þú vilt ræða valið.

Kennslubíll: Kia Niro

Einbeittu þér að akstrinum.

Bíllinn sér um gíraskiptingarnar. Þú færð svigrúm til að einbeita þér að umferðinni, aðstæðum og stjórn bílsins.

  • Engin kúpling eða handvirkar gíraskiptingar
  • Ökunám á sjálfskiptum bíl frá fyrsta tíma
  • Þjálfun í umferð, aðstæðum og öruggum akstri

Með prófi á sjálfskiptan bíl máttu aðeins aka sjálfskiptum bílum. Nánar á Ísland.is

Eitt skref í einu.

Það þarf ekki að kunna allt áður en byrjað er. Hérna eru fyrstu skrefin.

  1. 1

    Höfum samband

    Sendu mér skilaboð eða hringdu í 692 3345. Við förum yfir það sem þú hefur í huga, val á skiptingu og hvernig námið getur hafist. Þú mátt spyrja um hvað sem er sem tengist ökukennslunni.

  2. 2

    Námsheimild

    Fyrsti formlegi áfanginn. Við förum saman yfir hvernig þú sækir um.

  3. 3

    Ökutímar og Ö1

    Grunnurinn að öruggum akstri.

  4. 4

    Æfingaakstur

    Valfrjáls þjálfun með leiðbeinanda.

  5. 5

    Ö2 og Ö3

    Ökuskóli og ökugerði.

  6. 6

    Bóklegt og verklegt próf

    Undirbúningur fyrir bílprófið.

Þetta er yfirlit, ekki föst stundatafla. Bóklegt og verklegt nám geta farið fram samhliða.

Hver er í farþegarsætinu?

Björgvin Þór Heiðarsson ökukennari

Hæ, ég heiti Björgvin.

Ég hef haft brennandi áhuga á bílum og akstri síðan ég var lítill. Ökukennslan er í fjölskyldunni, því afi minn var ökukennari.

Ég á rætur á Patreksfirði og Akureyri. Ég á þrjár dætur og elska að verja tíma með fjölskyldunni minni.

Ég kenni á sjálfskiptan og beinskiptan bíl á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú ert að velta fyrir þér ökunámi er þér velkomið að hafa samband og kynnast mér.

Kynnumst

Skýrt verð frá byrjun.

Stakur ökutími hjá mér er 45 mínútur. Fjöldi tíma fer eftir þjálfun og færni hvers nemanda.

16.500kr. á tímann

Báðar skiptingar. Ökuskólar, prófgjöld og annar kostnaður greiðast sérstaklega.

165.000 kr.
Áætlaður kostnaður við ökutíma eingöngu. Þetta er reiknidæmi, ekki mat á því hversu marga tíma þú þarft. Námsáætlunin er ákveðin í samráði við þig.

Algengar spurningar.

Hvenær get ég byrjað í ökunámi?
Ökunám getur hafist við 16 ára aldur. Sækja þarf um námsheimild og við förum saman yfir fyrstu skrefin. Sjá nánar á Ísland.is.
Þarf ég að velja skiptingu strax?
Nei, þú getur byrjað á að ræða valið við mig. Ég kenni á báðar skiptingar. Próf á beinskiptan bíl gildir einnig fyrir sjálfskiptan, en próf á sjálfskiptan bíl veitir aðeins réttindi á sjálfskipta bíla.
Ég kvíði fyrir akstrinum. Get ég samt byrjað?
Já, endilega. Segðu mér hvernig þér líður og hvað þú hefur áhyggjur af. Við getum rætt það áður en fyrsti tíminn er bókaður og lagt upp námið með þínar þarfir í huga.
Er æfingaakstur með leiðbeinanda skylda?
Nei, æfingaakstur er valfrjáls. Ljúka þarf Ö1 og fá viðeigandi staðfestingu og leyfi áður en hann hefst. Ökukennari metur færnina. Sjá skilyrði æfingaaksturs á Ísland.is.
Hvernig bóka ég fyrsta ökutímann?
Sendu SMS í 692 3345, hringdu eða sendu póst á bjorgvin.akstur@gmail.com. Við finnum tíma og ákveðum næstu skref saman.

Langar þig að leggja af stað?

Hvort sem þú vilt bóka tíma eða bara spyrja spurningar, þá er þér velkomið að hafa samband.

Hringdu eða sendu SMS

692 3345

Sendu mér póst

bjorgvin.akstur@gmail.com Senda SMS

Opnar drög í póstforritinu þínu. Ef ekkert opnast, sendu póst á bjorgvin.akstur@gmail.com eða SMS í 692 3345.

Senda þessi skilaboð sem SMS

HringjaSenda skilaboð