Ökunám á þínum hraða.
Tökum fyrstu skrefin saman. Veldu sjálfskiptingu eða beinskiptingu og finndu þína leið frá fyrsta ökutíma að bílprófi.
Hvernig bíl vilt þú læra á?
Þú getur lært á sjálfskiptan eða beinskiptan bíl. Veldu hér og hafðu samband ef þú vilt ræða valið.
Kennslubíll: Kia Niro
Einbeittu þér að akstrinum.
Bíllinn sér um gíraskiptingarnar. Þú færð svigrúm til að einbeita þér að umferðinni, aðstæðum og stjórn bílsins.
- Engin kúpling eða handvirkar gíraskiptingar
- Ökunám á sjálfskiptum bíl frá fyrsta tíma
- Þjálfun í umferð, aðstæðum og öruggum akstri
Með prófi á sjálfskiptan bíl máttu aðeins aka sjálfskiptum bílum. Nánar á Ísland.is
Kennslubíll: Hyundai Tucson
Full réttindi á báðar skiptingar.
Þú lærir á kúplingu og gíra samhliða umferðinni, skref fyrir skref og á þínum hraða.
- Próf á beinskiptan bíl gildir líka fyrir sjálfskipta bíla
- Æfum kúplingu og gírskiptingar í rólegu umhverfi áður en farið er í umferð
- Spurðu mig um bílinn sem notaður er í kennslunni
Eitt skref í einu.
Það þarf ekki að kunna allt áður en byrjað er. Hérna eru fyrstu skrefin.
- 1
Höfum samband
Sendu mér skilaboð eða hringdu í 692 3345. Við förum yfir það sem þú hefur í huga, val á skiptingu og hvernig námið getur hafist. Þú mátt spyrja um hvað sem er sem tengist ökukennslunni.
- 2
Námsheimild
Fyrsti formlegi áfanginn. Við förum saman yfir hvernig þú sækir um.
- 3
Ökutímar og Ö1
Grunnurinn að öruggum akstri.
- 4
Æfingaakstur
Valfrjáls þjálfun með leiðbeinanda.
- 5
Ö2 og Ö3
Ökuskóli og ökugerði.
- 6
Bóklegt og verklegt próf
Undirbúningur fyrir bílprófið.
Þetta er yfirlit, ekki föst stundatafla. Bóklegt og verklegt nám geta farið fram samhliða.
Hver er í farþegarsætinu?
Hæ, ég heiti Björgvin.
Ég hef haft brennandi áhuga á bílum og akstri síðan ég var lítill. Ökukennslan er í fjölskyldunni, því afi minn var ökukennari.
Ég á rætur á Patreksfirði og Akureyri. Ég á þrjár dætur og elska að verja tíma með fjölskyldunni minni.
Ég kenni á sjálfskiptan og beinskiptan bíl á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú ert að velta fyrir þér ökunámi er þér velkomið að hafa samband og kynnast mér.
KynnumstSkýrt verð frá byrjun.
Stakur ökutími hjá mér er 45 mínútur. Fjöldi tíma fer eftir þjálfun og færni hvers nemanda.
Báðar skiptingar. Ökuskólar, prófgjöld og annar kostnaður greiðast sérstaklega.
Algengar spurningar.
Hvenær get ég byrjað í ökunámi?
Þarf ég að velja skiptingu strax?
Ég kvíði fyrir akstrinum. Get ég samt byrjað?
Er æfingaakstur með leiðbeinanda skylda?
Hvernig bóka ég fyrsta ökutímann?
Langar þig að leggja af stað?
Hvort sem þú vilt bóka tíma eða bara spyrja spurningar, þá er þér velkomið að hafa samband.